Ligga ligga lá......

Nú eru auðmennirnir farnir að rífast innbyrðis. Pabbi minn er miklu ríkari en pabbi þinn. Það sem þú segir er tóm lygi. Við áttum miklu meira en þú. Þetta er ekki okkur að kenna. Það ert þú sem eyðilagðir allt saman. Við værum ennþá vellvellríkir, ef þú hefðir ekki eyðilagt allt. En ég á miklu meiri peninga á Cayman Islands en þú. Þú átt bara Rússapeninga. Og ég skil ekki afhverju Seðlabankastjóri er vondur við mig. Kannski er það bara af því að ég er Framsóknarmaður helv....íhaldið þitt. Ég klaga bara í verkalýðsforystuna. Hún lánar mér úr lífeyrissjóðunum ekki þér.....ligga ligga lá.....
mbl.is Segja að eignir hafi verið umfram skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fæ bara velgju þegar ég lít á Sigurð Einarsson ,ég held hann ætti að borga skuldirnar sem hann og fleiri auðmenn eru búnir að drulla yfir þjóðina.

Anna (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband