Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Kaffimálverk

Kaffimálverk. Listamaður að störfum. Laugavegur/Smiðjustígur. Kl. 13.00-20.00. Í dag. Velkomin.

Fiskur undir steini

Það hlaut að vera. Þar lá fiskur undir steini. Á Dalvík. Ekki í Skólavörðuholtinu eins og sagt var frá í bók eftir Hendrik Ottósson.
mbl.is Fjölmenni á Dalvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Play it again Sam" og málað með kaffi á Laugaveginum á morgun

Let's play the music

Let's play the music!!

South River Band

Verð í glugganum hjá Gullkúnst Helgu að mála með kaffinu mínu,á horni Laugavegar og Smiðjustígs, frá hádegi á morgun og eitthvað frameftir. Velkomin í spjall. 


mbl.is Berlusconi hefur ekkert að fela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feldskerinn góður

Feldskerinn góður ........ eins og ævinlega. Hann á skilið hrós og það fær hann frá mér. Vonandi verður húseigandi sama sinnis. Þá fær hann hrós líka.
mbl.is Eggert feldskeri og hústökufólkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Renna nú á mig steingrímur tvær......

Renna nú á mig steingrímur tvær.... ef ekki fleiri. Heilagar hallelúja sósur hylja minn íslenska hádegisfisk. Þistilfjarðarhjartað slær hratt en óreglulega. Ég er að hugsa um að sleppa bananasplittinu í eftirrétt.
mbl.is Vill ekki stríð við aðrar þjóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvatvísir Íslendingar

Íslendingar eru hvatvísir og nú á að fara að setja fyrirvara og jafnvel semja upp á nýtt og draga þar með í land með fyrri ákvarðanir "stjórnvalda". Ég held að sé nokk sama hvað verður.... Íslendingar eru dæmdir til fátæktar í langan tíma. Menn muna sækja í auðlindir okkar og erfitt verður að standa á móti þegar þjóðinni vantar mat. Vantar mat. En hvernig væri að berjast til síðasta manns? Það væri þá ekki í fyrsta skipti sem þjóðin gerði það.
mbl.is „Það er búið að semja!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Pot and the Pan Revoulution is over

Ég spái því að þarna megi greina upphaf þeirrar byltingar sem gerð verður í haust eða vetur. Ennfremur má hér greina endalok Búsáhaldabyltingarinnar (The Pot and the Pan Revoulution). Og jafnvel endalok The Pot and the Pan Party. Það er alþekkt í mannkynssögunni að byltingarbörn verði mjög svo ósammála um, hvernig "byltingu" skuli framhaldið og oftar en ekki borist á banaspjótum. Þegar börnin finna lyktina af valdinu og auðnum...... ja þá getur allt gerst. Ég ætla ekki að hringja í Vikuna vegna spádóms míns.... bara svo það sé á hreinu.
mbl.is Enginn þingmaður mætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnús Geir

Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri hefur sýnt það og sannað að hann kann að laða fólk að leikhúsinu. Ég hef hrósað honum áður á blogginu og læt þetta nægja að sinni.
mbl.is Metaðsókn í Borgarleikhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullt af marklausum plöggum

Eru ekki flest plögg í þessu þjóðfélagi að verða marklaus?? Ég fæ ekki betur séð. Stjórnvöld, bankar,tryggingafélög og fleiri velta auknum kostnaði sínum beint út í verðlagið og þó þrotabú bankanna fái eftirgjöf frá sínum lánadrottnum, þá fær íslensk alþýða ekki að njóta þess. Hún skal borga allt að fullu og vel ríflega það. Þetta getur bara endað á einn veg með sama áframhaldi: Illa.
mbl.is Sáttmálinn marklaust plagg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taktu pening.......

Taktu pening út úr bankanum! Það gæti bjargað lífi þínu!
mbl.is Pissaðu í sturtunni!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband