Thorberg föstudaginn 7. september

Tobbi og Tobba 

 

null

 

"Mikið var það nú gott hjá Ingibjörgu Sólrúnu að kalla heim íslenska herinn frá Írak".

"Ja elsku hjartað mitt, ekki veitir nú af mannskapnum hér heima þegar Rússsinn er að koma".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Flottar myndir hjá þér. Sérstaklega Tobba og Tobbi. Annars er ég ánægð  með Ingibjörgu þarna. Þetta voru aðvitað mótmælaaðgerðir af hennar hálfu og hún er að reyna að laga það sem hálfvitinn á undan henni gerði.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 7.9.2007 kl. 20:02

2 identicon

Ég held að félagi Bush sé ekki hress með að missa út þessa öflugu herdeild

Hörður Pálmarsson (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 21:10

3 Smámynd: Bergur Thorberg

Kristín.... Þakka þér fyrir hlý orð. Hafi það verið táknrænt, eins og forsætisráðherra segir, að hafa einn mann í Írak, þá er það ekki minna táknrænt að kalla blessaðan manninn heim.

Hörður..... Ég er alveg sama sinnis. Sorgardagur í Washington. Og í Pentagon.... Stríðið er tapað.

Bergur Thorberg, 7.9.2007 kl. 22:29

4 Smámynd: Bragi Þór Thoroddsen

Íslensk valkyrja hefði getað gert stóra hluti. Ein ónefnd var talin hafa berað brjóst sín í Vínlandi hinu góða og borið fram á sverði sínu og þannig hrakið af sér ómenni sem að henni sóttu. Það gæti virkað í Írak þar sem menn ku siðvandaðari gagnvart nekt en hér í Sódómska hluta heimsins. En tek undir með mínum ágætu starfsfélögum; við höfum ekkert í hernaðarpólitíkina að gera. Það er ljótt af okkar stóra bróður BNA að ætla okkur hlutverk í að þrífa skít í austurlöndum nær, fjær og mið.

Þeir skulda okkur víst enn tiltekt eftir herrasssetu enda umhverfissóðar hinir mestu. 

Go Solla Bolla. 

vcd

Bragi Þór Thoroddsen, 7.9.2007 kl. 23:43

5 Smámynd: Bergur Thorberg

Amen, kæri bróðir.

Bergur Thorberg, 7.9.2007 kl. 23:50

6 identicon

Vááá!!! Hvað þetta er flott mynd!!! Þetta er líka stíll sem ég fell gjörsamlega fyrir. Get ég fengið að sjá meira???

Og BTW: Ég er ánægð með þennan gjörning ISG

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 00:06

7 Smámynd: Bergur Thorberg

Þakka þér fyrir Anna mín. Þetta er náttúrulega málað með kaffi og á hvolfi, þ.e. myndin snýr öfugt við mér þegar þegar geri hana, og svo snerti ég ekki pappírinn þegar ég vinn. Þú getur séð fleiri pappírsverk á thorberg.is en það eru allt mun eldri myndir. Ætlunin er að birta nánast daglega eitthvað í þessum dúr.

Bergur Thorberg, 8.9.2007 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband