Færsluflokkur: Bloggar

Spilltir stjórnmálamenn höfðu fé af íslensku þjóðinni... látum þá gjalda fyrir það

Fyrrum eigendur bankanna fengu þá á silfurfati frá misvitrum stjórnmálamönnum sem höfðu umboð þjóðarinnar. Hinir nýu eigendur voru hvattir áfram af ráðamönnum þess tíma. Pólitísk spilling réði því hverjir fengu bankana, hverjir fengu kvótann og hverjir fengu Símann. Horfumst í augu við það. Þeir eru sem betur fer flestir fyrrverandi stjórnmálamenn en það firrir þá ekki ábyrgð. Þeir brugðust íslensku þjóðinni og höfðu af henni fé með spillingu og lögðu líf margra í rúst með gjörðum sínum. Látum þá gjalda fyrir það. Engin nöfn nefnd en flestir vita hverjir þeir eru.


mbl.is Annarra að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Skagaströnd!!

Ég skil ekki hvað menn eru að abbast upp á svona atvinnubótastarfssemi og það á landsbyggðinni. Ég vil veg Skagastrandar sem mestan, enda fæddur þar og uppalinn. En svo má náttúrulega benda fólki á að það er fullt af nýjum hlutum í gangi á Skagaströnd. Mjög svo spennandi. Áfram Skagaströnd.
mbl.is Feðgar dæmdir fyrir kannabisræktun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flamberað framsóknarfilé

Ég býð öllum í vanmat í kvöld. Einnig geta menn fengið sér fasteignamat eða umhvefismat, já og einnig verður boðið upp á flamberað framsóknarfilé í  súrsætri Icesave sósu. Sem meðlæti er boðið upp á heimaræktað grænmeti úr Alþingisgarðinum. Í eftirrétt er boðið upp á hollenska og enska ábresti eins og hver getur í sig látið.
mbl.is Wengar varar við vanmati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja maðurinn

Þarf blessaður maðurinn að standa skil á því sem hann er í persónulegum ábyrgðum fyrir? Ja hérna! Ég er svo hissa. Ég sem hélt að þetta væri bara eitt pennastrik fyrir menn eins og Magnús og málið dautt. Bara að hann missi nú ekki þyrluna. Maðurinn þarf að komast leiðar sinnar fljótt og vel milli lánastofnana til að afskrifa skuldir. Annað er ekki manninum sæmandi.
mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði átt að nota norska brjóstdropa

Ég kenni í brjósti um þessa konu. Ég hef ekki brjóst í mér til að skrifa um hana. Brjóstumkennanlegt. Ja... hún hefði kannski átt að prufa norska brjóstdropa. Hefði hún drukkið nógu mikið af þeim... hefði hún ekki áhyggjur af brjóstunum. Þeir gera kraftaverk... er manni sagt. Ykkur finnst kannski að ég sé svolítið harðbrjósta... en ég hef ekki brjóst í mér að segja annað.
mbl.is Bað Guð um stærri brjóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar rukki hvern annan

Ísland er á svörtum lista um allan heim. Eins gott að viðurkenna það. Nú geta Íslendingar eytt öllum sínum tíma í að rukka hvern annan. Þar er Ríkið nú þegar í fararbroddi og setur fólk í fjárnám vegna smáskulda og svo skal hoggið sem mest af öryrkjum og atvinnulausum. Glæsilegt!!!!
mbl.is Djúpt vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi, (b)ölvun og biluð lyfta

Ofbeldi, (b)ölvun og biluð lyfta

best væri mennina forræði að svipta.

Væri það ráð að berja til baka?

Og búa til uppskrift svo úr verði kaka?


mbl.is Ofbeldi, ölvun og biluð lyfta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt!!

Bara glæsilegt!! Tottenham liðið var mun betra nánast allan leikinn og sigurinn hefði getað orðið mun stærri. Allt liðið spilaði vel og má kannski sérstaklega nefna Palacious, Modric og Bassong, en Keane, Defoe, Ekotto og Corluka voru líka mjög góðir. Þá kom Ledley King sterkur inn. Fastar og hnitmiðaðar sendingar einkenndu leik liðsins og greinilegt að menn mættu mjög einbeittir til leiks. Liverpool liðið náði aldrei að trufla Spurs að neinu marki og vörnin virkaði gloppótt og opnaðist hvað eftir annað. Til hamingju Spursarar!!
mbl.is Tottenham lagði Liverpool á White Hart Lane
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldraður.... ekki unggraður

Eitt er að vera aldraður..... annað að vera unggraður.
mbl.is Telegraph: Ekkert venjulegt hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkomulag........ beint á toppinn

Samkomulag? Nú á að halda stóra samkomu og meira að segja búið að semja lag fyrir samkomuna. Hvernig skyldi það hljóma? Árni Johnsen forsöngvari? Kæmi ekki á óvart.
mbl.is Samkomulag í fjárlaganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband