Færsluflokkur: Bloggar

Það verður einhver að líta á manninn

Hlustar Davíð á Bubba frekar en okkur? Það held ég ekki. Svæsnin og hrokinn virðast hafa tekið sér bólfestu í þessum "fyrrverandi stjórnmálamanni". Nú er þetta orðið aumkunarvert og út úr korti. Það verður einhver að líta á manninn ef hann gefur þá færi á sér.
mbl.is Bubbi rokkar Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítahola

Þar höfum við það. Ábyrgðin liggur hjá öllu stjórnkerfinu. Djö....... skítahola er þetta. Það er ekki mér að kenna.... það er honum að kenna.. nei... ekki mér...henni... assgotas..... og við verðum að moka upp úr holunni.... fokk...
mbl.is Veðjuðu á endurlífgun hagkerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Scolari til Portsmouth eða Newcastle?

Hver veit. Ekki ég.
mbl.is Segir að Abramovich hafi rekið Scolari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fara Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Davíð Oddsson með völdin í landinu?

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að íslensk stjórnvöld ráða harla litlu um framgang efnahagsmála hér á landi. Það kemur vel fram í þessari frétt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ræður ferðinni. Kannski situr Davíð sem fastast, því hann veit meira en Jóhanna um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Það á þá eftir að koma í ljós. Svona ástand í stjórnun landsins gengur ekki lengi. Sjóðurinn og Davíð ráða öllu.
mbl.is Tæknilegar ábendingar í trúnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo bregðast krosstré.........

Ja svo bregðast krosstré sem önnur tré, ég segi nú ekki meira en það.
mbl.is Hiddink og Grant orðaðir við Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Get ekki hætt í bankanum af því að ég er ómissandi

Megininnhald bréfs Eiríks Guðnasonar til forsætisráðherra er að mínum dómi þetta: Ég ætla ekki að hætta því ef ég hætti þá fer allt í vitleysu í bankanum. Talandi um sjálfsálit!!!!!! Eiríkur virðist ekki þekkja orðtiltækið: Maður kemur í manns stað. Ég þarf ekki að ganga til nokkurra starfslokaviðræðna, því að ég er búinn að öðlast fullt af réttindum vegna starfa minna í bankanum og fæ þess vegna glás af peningum þegar ég hætti. Að lokum er tónninn í bréfinu sá að Eiríki finnst að hann geti setið eins lengi í stól bankastjóra Seðlabankans og hann sjálfur kýs. Þetta kallast hroki á góðri íslensku. Það er líka ansi mikill Davíðsfnykur af bréfinu. Þessir menn líta á sjálfa sig sem æðri íslenskum stjórnvöldum. Íslenska þjóðin gapir af undrun og hneykslan yfir framferði þessara manna og það gerir umheimurinn líka, eins og fram hefur komið margoft. Svo sjást þeir aldrei í fjölmiðlum og þurfa ekki að svara fyrir neitt. Þetta er óforskammað af þessum mönnum að koma svona fram (á feitum launum frá ríkinu (okkur), og verður lengi í minnum haft. 
mbl.is Bréf bankastjóranna birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn ver höfðingjavaldið

Jájájájájájá..Björn Bjarnason. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Ég segi nú ekki meira en það.
mbl.is Björn: Réttmæt ábending Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður almenningur að koma kallinum út?

Þetta er hlægilegt, grátlegt, aumkunarvert, allt í senn. Nú er ekki nóg að láta í ljós vonbrigði, nú á að framkvæma. Verður almenningur að koma kallinum út? Ég er næsta viss um að hann er tilbúinn til þess. Nógu lengi er Davíð búinn að gena störfum í íslenskri stjórnsýslu. Meirihluti þjóðarinnar er kominn með upp í kok. Er ekki hægt að loka bara skrifstofunni hans á morgun? Þessi vitleysa gengur ekki lengur. Það er nóg annað að gera, svo mikið er víst.
mbl.is Lýsir miklum vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn hlýtur að vera brenglaður sem aldrei fyrr

Þetta er að verða þvílíkur farsi að maður veit ekki alveg hvað skal segja. Seðlabankastjóri í einkastríði við réttkjörin yfirvöld á Íslandi!! Hvenær losnar íslenska þjóðin við Davíð Oddson úr pólitík? Því þetta ekkert annað en pólitík. Það er einsdæmi í lýðræðisríki að einn einstaklingur komist upp með að hunsa ríkjandi stjórnvöld og vera einhvers konar ríki í ríkinu. Mikill meirihluti þjóðarinnar vill hann burt en hann situr sem fastast, storkar ríkisstjórninni með hroka og heldur að hann komist upp með það. Maðurinn hlýtur að vera brenglaður sem aldrei fyrr.
mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Tottenham hefði átt að vinna

Algjör synd að Spursarar unnu ekki þennan leik. Arsenalmenn vörðust vel í seinni hálfleik en Tottenham hefði átt að vinna. Ég jafna mig örugglega ekki fyrr en eftir 5 mínútur.
mbl.is Tíu Arsenalmenn héldu jöfnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband