Fari það í rassgat að menn sætti sig við svona ástand

Ég veit eiginlega ekki hvað er að gerast hjá minni elskulegu þjóð þessa dagana. Nema kreppan æsi svona upp skemmdarfýsn í mönnum. Það eru dólgslæti úti um allar trissur og menn að berja mann og annan. Menn eru pirraðir víða að hafa misst af góðærinu eða hafa eytt of miklu. Hafa líklega gert ráð fyrir að fá að lifa, í eilífðareyðslusæluvímu það sem þeir ættu eftir ólifað. Svo láta menn gremju sína bitna á blásaklausu fólki, bara til að fá útrás fyrir þessar hvatir sínar. Fari það í rassgat að hinn almenni borgari sætti sig við svona ástand.
mbl.is Málningu kastað á heimili byggingarfulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð S. Sigurðsson

þér finnst kannski gaman að fá menn með myndavélar í garðinn þinn, .þ.e.a.s borgarstarfsmenn sem brjóta stjórnsýslulög og æða inná einkalóð í leyfisleysi? Og skikka þig til að laga hluti sem þér finnst etv vera í lagi en þú þarft að beygja þig undir duttlunga þeirra á þinni einkalóð annars geta þeir sett á þig dagsektir að allt að einni og hálfri milljón á dag? af því að þú vilt hafa lóðina þína öðruvísi en borgarmenn?

Davíð S. Sigurðsson, 1.7.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Ertu að meina það? Komu þeir og tóku myndir í garðinum Þínum? Og ein og hálf milljón á dag? Er það tilfellið? Í færslunni hér að ofan er ég eingu að tala um umrætt skemmdarverk hjá Magnúsi.

Bergur Thorberg, 1.7.2008 kl. 22:11

3 Smámynd: Skaz

Ég verð að viðurkenna að þó að mér blöskri þessi viðbrögð, málningarslettur og allt. Þá skil ég þau.

Borgin virðist hafa ákveðið að þröngva sinni réttsýni á fólk og að þröngva ímynd sinni af Reykjavík sem er ekki endilega mjög raunsæ. Mér finnst nefnilega eins og nefnt er hér að ofan þá er það dálítið creepy þegar borgarstarfsmenn eru farnir að setja út á garða og hnýsast á lóðum fólks og gagnrýna listaverk á veggjum þess og dæma þau undir hvíta málningu. 

 Og það að geta rukkað fólk fyrir svona er fáránlegt.

 Skemmdarverkin flokka ég undir mótmæli eða hefndaraðgerðir....óviðeigandi en klassísk...

Skaz, 1.7.2008 kl. 23:00

4 identicon

ææi... Ég veit ekki, mér finnst það eiginlega bara í lagi að fólk láti aðeins í sér heyra þegar það er óánægt, kannski ekki heppilegt að sulla málningu á húsið hjá þessum kalli en piff hann á fullt af pening og það er spá fínu veðri um helgina þannig hann getur alveg ráðið einhvern til að mála yfir.

Málið er að þetta stjórnkerfi okkar virkar ekkert. Þetta fólk sem tekur ákvarðanir fyrir okkur er bara venjulegt fólk sem fær borgað geðveikan pening til þess að taka ákvarðanir fyrir okkur... N.B. Ég er kannski reiðari við fólk sem hefur meiri völd en byggingarfulltrúi en samt. Ég meina þetta er fólk sem gerir ekkert nema að auglýsa sig og vona að flokkurinn verði kosinn. Þetta er fólk sem er oft ekkert menntað. t.d. Gísli Marteinn bara með stúdents próf, svo varð vinnan hans bara í að smjaðra fyrir gömlum kellingum og svo munaði bara litlu að hann yrði borgarstjóri um daginn.  Árni Johnsen ég meina hann er bara fífl, það finnst öllum hann fífl! nema nokkrum heilaþvegnum sjálstæðismönnum og skyldmennum hans í eyjum og hann er á þingi!!! WHATT!! þetta er svo mikið rugl. Fullt af þessum liði sem er að taka ákvarðanir fyrir okkur eru bara fífl. Svo skiptast þau frá ári til árs um ráðherra stóla. Eitt árið er einhver iðnaðarráðherra og á að taka veiga mestu ákvarðanir sem snerta iðnað í landinu, svo næsta sjávarútvegsráðherra og hefur úrslitavald um útdeilingu kvóta fram yfir hafró. Þetta kerfi er bara rugl. Svo hefur maður ekkert vald ef maður er óánægður, maður kýs og ef flokkarnir brjóta kosningaloforðin sín eða koma með einhverja fáránlegar stefnur, þá er ekkert sem maður getur gert nema segjast ekki ætla að kjósa þau næst.

Fokk it, um að gera að sulla málningu ef þú ert ósáttur. Frekar samt á alþingismenn frekar en byggingarfulltrúa. Við eigum að taka Helga Hósearson okkur til fyrirmyndar og láta í okkur heyra ef við erum ósátt.

Helgi (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 01:02

5 identicon

Eru eigendur sóðalegu hreysanna í miðbænum farnir að kommenta hjá þér, Bergur minn. Ég get ekki séð annað af afstöðu þeirra.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 08:47

6 Smámynd: Davíð S. Sigurðsson

Sko, ef þetta væru bara sóðaleg hreysi í miðbænum þá væri mér nokk sama og ég vil taka það fram að ég hef ekki fengið bréf frá borgaryfirvöldum, mér einfaldlega blöskrar þessi framkoma og óviðeigandi stjórnsemi

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397973/7 

hérna gefur að sjá frétt um fólk sem fær eitt slíkt bréf, og af þeirra vitnisburði að dæma er þetta einhverjir duttlungafullir fávitar sem ætla að skikka fólk til hlýðni. 

En hey, það virðist vera rosalega algengur hugsanaháttur hjá fólki að "hey þetta kom ekki fyrir mig þannig að fólk á þetta bara skilið!" 

sbr vörubílstjóramótmælahneykslið. 

Reynið að kynna ykkur málin almennilega áður en þið farið að básúna fáfræðilegum skoðunum ykkar. 

Ísland er gjersamlega FUCKED þessa dagana, yfir 70 af hundraði eru óánægðir með aðgerðir ríkistjórnarinnar í efnahagsmálum... hvað gerist? ekki rassgat, hæstvirtur forsætisráðherra bregst við spurningum um ástandið með dónaskap og hroka. 

Íslenskt stjórnkerfi er orðið vandræðaleg samkunda sjálfsframapotara og eiginhagsmunaseggja sem virðist vera skítsama um hinn almenna borgara. 

Davíð S. Sigurðsson, 2.7.2008 kl. 14:39

7 Smámynd: Bergur Thorberg

Nokkuð til í orðum þínum. Já. Bara þó nokkuð.

Bergur Thorberg, 2.7.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband