Laugdælingar á berserkjasveppum

Ef og þegar berserksgangur og skrílslæti breytast í hryðjuverk sem beint er gegn börnum, þá verða ráðandi stjórnvöld að grípa inn í með afgerandi hætti. Hætt er við að þarna sé á ferðinni einhver ólyfjan eins og þegar menn átu berserkjasveppi hér áður fyrr og skrifað hefur verið um í Íslendingasögum. Ef um sömu menn er að ræða í öllum þessum þremur tilvikum í Laugardalnum þá er málið komið mjög svo hættulegt stig. Hefðu þessir menn leikið þennan "leik" í öðru ónefndu landi, er ég hræddur um að þeim yrði ekki sýnd mikil miskunn og mættu jafnvel fara að hugsa um aðra stóla, öllu rafmagnaðri en stólana í Laugardal. Það er almenn vitneskja að menn hafa komist upp með alls kyns ofbeldi hér á landi, án þess að þurfa að óttast svo mjög afleiðingar af því. Margir hafa lent í hnefa og hnífamönnum hér á landi og bíða þess aldrei bætur. Á sama tíma hafa ofbeldisseggirnir ekki þurft að taka afleiðingum gjörða sinna og ganga enn um og berja mann og annan. Ég er ekki talsmaður lögregluríkis á nokkurn hátt, en ef ofbeldi úr Íslendingasögum er upphafið í hetjudáðir er kannski ekki von á góðu. Kannski væri hollt fyrir þjóðina að skoða söguna í heild sinni og tengja ástandið í samtímanum við staðreyndir úr fortíðinni. Fögur orð um frið milli manna verða hjómið eitt, ef við látum, oft á tíðum, tilefnislaust ofbeldi, viðgangast, lítum undan og segjum: Þetta var nú einsdæmi. Þetta gerist aldrei aftur. Það er nefnilega ekki þannig. Við lögregluna segi ég: Leysið þetta mál áður en verra hlýst af. Og leitið orsakanna fyrir verknaðinum.
mbl.is Gengu berserksgang í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Mig langar að vita hverjir stóðu þar að verki áður en ég fullyrði of mikið um þetta mál. Mér finnst eins og þessir drengir (ef drengir eru) tengist að litlu leiti umhverfisbaráttu og hafi verið ásettningur þeirra fyrst og fremst að koma óorði á hana með þessu framferði sínu. Voru ekki um 30 þúsund mans þarna á svæðinu þegar mest var ? ... ef það er rétt á mér er þá ekki dálítið fyrirsjáanlegt að vandræði geti alltaf orðið að veruleika. Það þarf ekki nema um 10 mans til þess að leggja svona hátíðir algjörlega í rúst. 

Brynjar Jóhannsson, 2.7.2008 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband