Dimmt yfir Modena

Stórkostlegur listamaður er allur. Listamaður sem hefur yljað mér um hjartaræturnar svo árum skiptir. Eins og engill af himnum ofan hefur hann sungið sig inn í heimsbyggðina og mun hans verða minnst svo lengi sem lífsandinn er dreginn á þessari jörð. Það sem kannski færri vita er að á seinni árum varð hann æ virkari sem málari, þó hann fari kannski ekki í sögubækurnar sem slíkur en í verkum hans mátti finna þá næmni sem einkenndi sönginn. Það er eins og vindurinn í Austurstræti sagði mér einu sinni: Það er alveg sama hvert listformið er, þetta er allt sami hluturinn, bara spurning um birtingarformið. Guð blessi minningu Luciano Pavarotti.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Annie Guðbergsdóttir

Ég las það sem þú skrifaðir um málverkin. Mér finnst þú nú bara snillingur í þessu og ættir bara að fá meiri umfjöllunn.

Margrét Annie Guðbergsdóttir, 6.9.2007 kl. 11:16

2 Smámynd: Bergur Thorberg

Þakka þér fyrir Margrét mín.Ég hef nú fengið talsverða umfjöllun(t.d. Séð og Heyrt fyrir hálfum mánuði þar sem ég lýsi hvernig þetta varð allt saman til)en annars liggur minn ferill að mestu leyti erlendis og ég er með sýningar víðsvegar í Evrópu og Ameríku. Farðu vel með þig. kv.  Thorberg

Bergur Thorberg, 6.9.2007 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband